top of page

Hlaupaþjálfun eftir fæðingu með styrk

  • 52 Steps

UM PRÓGRAMIÐ

Hlaupaþjálfun eftir fæðingu er 8 vikna prógram sem inniheldur 2 hlaupaæfingar á viku + 2 styrktaræfingar á viku + 1 liðleikaæfingu á viku leidda af þjálfara ásamt alls konar fræðslu. Mælt er með að byrja ekki fyrr en 12 vikum eftir fæðingu eða síðar nema viðkomandi hafi fengið grænt ljós frá sérhæfðum lækni eða sjúkraþjálfara sem sérhæfir sig í kvenheilsu. Ótakmarkaður aðgangur er að prógraminu & því mikill sveigjanleiki en mælt er með að taka hvíldardaga á milli æfingadaga. Allar æfingarnar innihalda upphitun / virkjun ásamt niðurlagi (cool down) / teygjum & eru á bilinu 30-40 mínútur nema liðleikinn er 20-30 mín. Hlaupaæfingarnar er hægt að framkvæma úti & á hlaupabretti. Eini búnaður sem þarf er ein lítil æfingateygja fyrir virkjun & gott er að huga að góðum skóbúnaði. Styrktaræfingarnar er hægt að taka heima & að sjálfsögðu í líkamsræktarstöð. Ef æfingarnar eru framkvæmdar heima þarf eftirfarandi búnað: Handlóð eða ketilbjöllu, gott að eiga tvær mismunandi þyngdir, eina léttari fyrir efri líkama & eina þyngri fyrir neðri líkama, lítil æfingateygja & góð æfingadýna. Markmiðið með hlaupaþjálfuninni er að byggja upp stigvaxandi styrk & úthald með skynsömum hætti eftir fæðingu. Þar sem meginmarkmiðið er að geta að lokum hlaupið verkja- & einkennalaus í 30-35 mínútur samfleytt. Hlaupaæfingarnar eru útfærðar af Elínu Sóleyju landsliðskonu sem eignaðist dóttur sína sumarið 2024 & hefur mikla reynslu af hlaupum & að koma sér aftur af stað í hlaupum eftir fæðingu. Styrktaræfingarnar & leiðleikaæfingarnar eru útfærðar af Hildi Kareni, eiganda Móðurkrafts, sem hefur starfað við þjálfun kvenna á meðgöngu & eftir fæðingu síðan byrjun árs 2022 & hefur sjálf eignast tvö börn. Við vildum sameina krafta okkar & búa til raunhæft, viðráðanlegt & skemmtilegt hlaupaprógram fyrir konur til að koma sér aftur af stað í hlaupum eftir fæðingu með öruggum hætti. Ásamt því að stuðla að þekkingu & sjálfstrausti til að lesa í eigin líkama & treysta honum aftur á hlaupum.

You can also join this program via the mobile app. Go to the app

YFIRLIT

PRICE

ISK 29,990

SHARE

bottom of page