UM PRÓGRAMIÐ
Grunnur eftir fæðingu er 6 vikna æfingaprógram með þremur æfingum á viku. Prógramið er ætlað nýbökuðum mæðrum sem eru að byrja að hreyfa sig aftur eftir fæðingu & vilja styrkja kvið, grindarbotnsvöðva, mjaðmir & bak eftir barnsburð með skynsamlegum hætti. Með prógraminu fylgir fræðsla með þar sem er farið yfir líkamsstöðu, kjarnaöndun, diastasis recti, hlaup eftir fæðingu o.fl. Þar að auki eru göngutúraæfingar, ein fyrir hverja viku, sem hægt er að taka úti í göngutúrnum þínum og krefst ekki búnaðar nema þá bekkjar & stundum rólu. Síðan er einnig í boði valfrjáls mjúkur styrkur eða hjólaæfingar sem fylgir sumum æfingadögunum sem er þá t.d. hægt að taka ef viðkomandi er eitthvað farin að mæta í ræktina aftur eða á annað hvort handlóð eða ketilbjöllu heima. Prógramið er þannig uppbyggt að fyrstu 3 vikurnar innihalda mjög mjúkar grunnkvið- & grindarbotnsæfingar ásamt liðkun fyrir eða eftir æfingu & seinni 3 vikurnar innihalda aðeins meira krefjandi æfingar þar sem bætist inn styrktaræfingar með langri teygju. Gott væri ef viðkomandi ætti til svoleiðis teygju eða gæti fengið lánaða. Sömuleiðis ef viðkomandi á til stuttar teygjur eða pílates bolta, annars er hægt að nota löngu teygjuna í staðinn sem tvöfalda & hægt að sleppa boltanum eða notan þéttan púða í staðinn. Ekki er nauðsynlegt að vera með allan þennan búnað og aðrar æfingar eru alltaf sýndar sem er hægt að framkvæma í staðinn, þá bara með eigin líkamsþyngd. Annars eru æfingarnar mjög fjölbreyttar svo auðvelt er að taka einhverja daga aftur ef viðkomandi finnst hún ekki vera tilbúin í meira krefjandi æfingar eftir fyrstu 3 vikurnar. Einnig eru sýndar auðveldari útfærslur af meira krefjandi æfingunum svo auðvelt er að aðlaga æfingarnar eftir þörfum viðkomandi. Æfingarnar miðast við að viðkomandi sé með fulla hreyfigetu en tekur tillit til verkja í mjaðmagrind & lífbeini. Prógramið hentar bæði konum eftir leggangafæðingu & keisarafæðingu.
You can also join this program via the mobile app. Go to the app